Ótrúlega ómerkilegar stjórnmálaumræður

Ég krefst þess að stjórnmálamenn hætti þessum kýtingum sín á milli um orsakir stjórnarslita og fari að vinna að því að bjarga þjóðarhag. 


mbl.is „Ótrúlega ómerkilegt“ af Samfylkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig endar þetta??

Sjá færslu hér fyrir neðan.

Hvernig endar þetta?

Við lifum á surealískum tímum.  Ekki hefði mér fyrir ári síðan dottið í hug að lögreglan þyrfti að beita táragasi gegn borgurum landsins.  En þessi alþjóðlega bankakreppa hefur heldur betur farið illa með íslenskt efnahagslíf og enginn virðist vilja bera ábyrgð.  Og þjóðin orðin þreytt á ástandinu. Reiðin kraumar meðal fólks.  Ný sturlungaöld?  Hvernig endaði hún aftur?

Áströlsk fegurð

Mary

Þetta kemur svosem ekki á óvart. Sjálfur féll ég fyrir krónprinsessunni er hún heimsótti minn vinnustað í vor.  Hér er ég að fræða hana um undirfatnað kvenna fyrr á tímum. Hún hafði áhuga á því, prinsinn hinsvegar ekki.


mbl.is Danir hrifnastir af Mary krónprinsessu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosið í baðstofu

kosningar

Ljósmynd þessi er tekin 20. nóvember 1993 í baðstofunni í Litlu-Sandvík.  Lengi vel fóru allar kosningar í Sandvíkurhreppnum fram í Litlu-Sandvík á heimili hreppstjórans og oddvitans. Þennan dag voru sameiningarkosningar og átti að fækka sveitarfélögum. Hér var kosið um þann möguleika að sameinast 6 öðrum sveitarfélögum í Flóanum. Það var að sjálfsögðu kolfellt eins og allsstaðar annarsstaðar á landinu. Ljósmyndin sem ég tók sýnir kjörstjórn Sandvíkurhrepps, þau Jónu á Dísarstöðum, Smára í Stóru-Sandvík og Dodda í Stekkum.  Einnig er á myndinni hreppstjórinn faðir minn Páll Lýðsson. Hann sá um utankjörstaðaatkvæðagreiðslu ef villuráfandi sauði bar að garði.  Hér hefur tvo slíka borið að og er annar þeirra frá Hellu en hinn úr Borgarfirði. Þeir komu að austan og voru á leið til Reykjavíkur. Borgfirðingurinn  sparaði sér þá miklu fyrirhöfn, að keyra í Borgarnes til að kjósa, með því að kjósa utankjörstaðar hjá hreppstjóranum í Sandvík.. Hreppstjórinn er eflaust að gefa þessum tveimur "spjátrungum" heilræði um lífið og tilveruna. Það hefur væntanlega farið inn um annað eyrað og út um hitt.  Sá sem býr sig undir að kjósa er heilbrigðisráðherra.

 


Jólakveðja

2008 (Tvíklikkið á kortið)


Hvað ætli að sé margt rétt í þessu tölvuflökkubréfi?

Ég fékk eftirfarandi e-mail, finnst ég verði að senda það áfram:
——–
Landsbankamaðurinn sem var hnepptur í varðhald fyrir 100 miljóna fjárdráttinn sé farinn að mala á fullu.

Davíð Oddson hefur þessi sönnunargögn, þetta er ein af leynibombum hans en hann er með gögnin um þetta mál og

líka mál á fleiri þingmenn. Þess vegna mun hann fagna utanaðkomandi rannsókn.

Upplýsingar um braskið hans Lúðvíks sem á Fasteign ehf, Miðklett ehf og Eykt ehf - sem á nánast aðra hverja byggingu í Borgartúninu,

koma úr átt Davíðs, sem gerði slíkt hið sama við Þorgerði Katrínu á sínum tíma í tengslum við Kaupþing í nóvember sl.

Lúðvík er ekki sá eini sem fékk sk. “mútu lán” hjá L.Í, lán með helmings lægri vöxtum en gengur og gerist.

-Sif Friðleifs fékk líka 75 milljónir líka á vildarkjörum til að kaupa hlutabréf í Decode - sem er líka verið að afskrifa

- Þorgils Óttar fékk Keflavíkurflugvöll á 11 miljarða en ásett verð vallarins eru 50 miljarða á vildarkjörum frá L.Í en hann hefur aldrei þurft að borga krónu af því og það er verið að afskrifa það líka.

Ég hef fengið þessar upplýsingar staðfestar og sannaðar en málið er að um 80 - 90% þingmanna eru innblandaðir inn í viðskipti af þessu tagi á einn eða annan hátt.

Sigurjón Ólafsson er að vinna í þessum afskriftum á vegum Landsbankanum í Apóteksturninum í Austurstrætí og þá vinnu er hann að vinna augljóslega í felum með tætarana í fullum gangi.

Og svona í lokin er Björgvin G. með myntkörfulán upp á einhverja tugi milljóna, borgar á aðra miljón af því á mánuði og mér skilst að KPMG hafi verið að vinna að afskriftum fyrir hann þegar þeir voru stöðvaðir í fyrradag, eitthvað hefur þó Sigurður G. lögfræðingur Glitnis og mágur Björgvins fengið þegar afskrifað nú þegar.

Hef fengið það staðfest að uppýsingar af þessum toga hefur Davíð Oddson á nánast allan þingheim og er því sallarólegur.
þori þeir ekki að hrófla við honum og láti hann því frekar valta yfir sig á meðan þeir fá að láta tætarana ganga.


Rök Reynis

Málið snýst um rök þau sem Reynir notar í samtali sínu við blaðamann sinn gegn því að birta greinina.  Annarsvegar að þetta sé gamalt mál - sem er alveg hárrétt því allir vissu að Sigurjón var kominn í ráðgjafarvinnu fyrir gamla bankann við að upplýsa og greiða úr ýmsum álitamálum. Hin rökin að birting þessarar greinar gætu reynst DV dýrkeypt sökum áhrifamanna. Það er hið alvarlega í þessu máli og við sjáum hinn íslenska fjölmiðlaheim, amk stærstu fjölmiðlana, kramda undir hæl eigenda sinna sem eru Baugur og Bjöggarnir, sem og RUV sem stjórnað er af bláu höndinni.  Hér gefur Reynir í skyn að DV fáist ekki prentað í prentsmiðju stóru blaðanna. Sem betur fer fæ ég að birta þessa bloggfærslu í boði Bjögganna.  (Reyndar þriðja tilraun - textinn hvarf í hin tvö fyrri skiptin!)
mbl.is Frétt DV stöðvuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Piparúðalagið

Fékk sent með tölvupósti áðan.  Viðeigandi hér við þessa frétt. Höfundur ókunnugur?


Í tilefni nýrra notkunamöguleika á pipar: (syngist með laginu „þegar piparkökur bakast...“)

Þegar piparúðinn notast
lítill löggumaður tekur:
Fyrst af öllu piparúðann
og hann ýtir fast á staut.
Þá má heyra ýmsa æpa,
aðrir hvítna eins og næpa.
Sumir nudda æstir augun,
æða grátandi á braut.

Þegar öllu þessu er lokið
lítill löggumaður segir:
Þetta er ansi góður úði,
allt er hyskið farið brott.
Inni í klefa á ég bjána,
einn með gulan bónusfána
Og með svona piparúða
gengur police-vinnan flott.


mbl.is Réðust inn í Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Litlasta land í heimi?

Þá er þessi þingsályktunartillaga komin fram og nú er verið að ræða stofnun sérstaks embættis saksóknara í bankahrunsmálum.  Nú þegar þessar línur eru skrifaðar er Jón Magnússon alþingismaður Frjálslyndra í ræðustól Alþingis.  Og hver er aftur sonur hans?
mbl.is Vantrauststillaga komin fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Bloggsíða Lýðs

Hver er Lýður?

Lýður Pálsson
Lýður Pálsson

Lýður Pálsson, safnstjóri á Eyrarbakka

lydurp@hotmail.com (ég sjálfur)

lydurp@byggdasafn.is (safnstjórinn)

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 58877

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband