Kosið í baðstofu

kosningar

Ljósmynd þessi er tekin 20. nóvember 1993 í baðstofunni í Litlu-Sandvík.  Lengi vel fóru allar kosningar í Sandvíkurhreppnum fram í Litlu-Sandvík á heimili hreppstjórans og oddvitans. Þennan dag voru sameiningarkosningar og átti að fækka sveitarfélögum. Hér var kosið um þann möguleika að sameinast 6 öðrum sveitarfélögum í Flóanum. Það var að sjálfsögðu kolfellt eins og allsstaðar annarsstaðar á landinu. Ljósmyndin sem ég tók sýnir kjörstjórn Sandvíkurhrepps, þau Jónu á Dísarstöðum, Smára í Stóru-Sandvík og Dodda í Stekkum.  Einnig er á myndinni hreppstjórinn faðir minn Páll Lýðsson. Hann sá um utankjörstaðaatkvæðagreiðslu ef villuráfandi sauði bar að garði.  Hér hefur tvo slíka borið að og er annar þeirra frá Hellu en hinn úr Borgarfirði. Þeir komu að austan og voru á leið til Reykjavíkur. Borgfirðingurinn  sparaði sér þá miklu fyrirhöfn, að keyra í Borgarnes til að kjósa, með því að kjósa utankjörstaðar hjá hreppstjóranum í Sandvík.. Hreppstjórinn er eflaust að gefa þessum tveimur "spjátrungum" heilræði um lífið og tilveruna. Það hefur væntanlega farið inn um annað eyrað og út um hitt.  Sá sem býr sig undir að kjósa er heilbrigðisráðherra.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Lýður, og velkominn, í spjallvinahóp minn !

Þakka þér; skemmtilega frásögu, sem og myndina, úr stjórnsýslu hins forna Sandvíkurhrepps.

Sannarlega; kvöddu þeir, fullfljótt, þeir Þorvarður heitinn, líka sem faðir þinn, á sínum tíma, en eigi er við örlögunum séð, Lýður minn.

Með beztu kveðjum; úr Hveragerðis- og Kotstrandar sóknum /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 02:29

2 Smámynd: Lýður Pálsson

Sæll Óskar Helgi.

Þakka þér kærlega fyrir innlitið á síðu mína, sem og hlý orð um gengna tvo.

Lýður.

Lýður Pálsson, 11.1.2009 kl. 02:42

3 Smámynd: Ásgeir Jóhann Bragason

Gaman að þessu vínur

Ásgeir Jóhann Bragason, 13.1.2009 kl. 17:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Lýðs

Hver er Lýður?

Lýður Pálsson
Lýður Pálsson

Lýður Pálsson, safnstjóri á Eyrarbakka

lydurp@hotmail.com (ég sjálfur)

lydurp@byggdasafn.is (safnstjórinn)

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 58932

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband