Dásamleg þýðingarvjel! - Þetta fékk ég í tölvupósti rétt áðan

Yndi Vinur

ÉG vita this skilaboð vilja koma til þú eins og a koma á óvart eins og við gera ekki vita hvor annan í manneskja en sökum the náttúran af this viðskipti hver ég er óður í til afhjúpa til þú , ég velja til snerting þú um email til leita að fyrir þinn samþykki fyrir félag fyrir okkur til framkvæma a framkvæmd þessi vilja vera gagnlegur til báðir af okkur. Áður ég halda áfram , Minn Nafn Er Herra. ZZZZ ZZZZZZ a Bretar Borgari ÉG er the tilbúinn til notkunar framkvæmdastjóri af Citibank Plc. Oxford Grein hér í London Uk. Á meðan okkar anual bankarekstur hæfnispróf hver took staður á the þriðji af this mánuður (3rd Júní 2009) við uppgötva a gríðarstór summa af peningar vinstri í a sofandi reikningur fyrir yfir sjö ár (7 ár ) án allir líkami óperu- á the reikningur eftir á futher rannsókn á the reikningur , við stofna út þessi the reikningur eiga að vera til einn af okkar erlendur fjárfestir ( herra. XXXXX LXXX ) hver því miður glataður hans líf saman með hans eiginkona í a brotlending í the ár

2002 á a frí ferðalag til Bandaríkin. According to til minn banki stýrikerfi og siðfræði svo sem sofandi reikningur vilja vera gera upptækan og the sjóður vilja vera hús inn í the banki ósóttur reikningur fyrir banki nota ef enginn koma upp eins og the arfþegi.

Eins og þú mega vilja til vita , Herra. X  XXXX innborgun this peningar til okkar banki providing that enginn eins og the arfþegi.

Minn val af snerting þú vekja undirstaða á the náttúran af this framkvæmd hver þurfa a útlendingur áður the sjóður geta vera gefa út og minn aðalæð tilgangur er til nútíminn þú til the banki eins og the ættingi svo þessi the sjóður virði af sextán milljón fimm hundrað þúsund Sameinaður Stjórnvitringur Dollari geta vera greiddur til þú eins og the arfþegi fyrir okkar gagnkvæmur hagur. á the endir af this framkvæmd the sjóður vilja vera hluti sextíu prósent (60) til mig og fjórði prósent (40) til þú. Þóknast ef þú ert áhugasamur í minn tilboð vingjarnlegur ná sér niðri á til mig þegar í stað eftir á lestur this skilaboð með the hópur stuðningsmanna smáatriði niðri :

Þinn Fullur Nafn

Þinn Aldur

Þinn Atvinna

Þinn Snerting Heimilisfang

Þinn Persónulegur Hreyfanlegur Sími Tala

Í kvittun af the yfir þurfa upplýsingar vilja búa húsgögnum þú með fleiri smáatriði og the halda áfram fyrir framkvæmd this verkefni aleiga mín þörf er þinn skilningur co - gangur og gæsla this framkvæmd toppur leyndarmál og leynilegur þangað til við ert. Eins og þú mega vilja til vita ég hafa allur the lífsnauðsynlegur upplýsingar til styðja this krafa og með the áhrif af minn staða í the banki við vilja ljúka this framkvæmd án allir hindrun.

Bíða eftir þinn áríðandi svar

Takk

Herra. ZZZZ ZZZZZZZZZZ


Jónsmessuhátíðin á Eyrarbakka er styrkt af Sveitarfélaginu Árborg

Frá árinu 1998 hafa Eyrbekkingar staðið að Jónsmessuhátíð með fjölbreyttri dagskrá þegar sól er hæst á lofti síðla júní.  Undirbúningur er í höndum vaskra sjálfboðaliða sem skipuleggja hátíðarhöldin.  Jónsmessuhátíðin á Eyrarbakka er styrkt af Árborg með sama hætti og aðrar þorpshátíðir í sveitarfélaginu.
mbl.is Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Suðurkjördæmið á ekki ráðherra

Óska þessari ríkisstjórn velfarnaðar.  Næg eru vandamálin. En hvar eru þingmenn Suðurkjördæmis? Hvar er Atli Gíslason?  Af hverju er Björgvin G. Sigurðsson ekki settur í nýtt ráðherraembætti annað en það sem hann er sagður hafa klúðrað á síðasta ári?  Í ríkisstjórninni gefur að líta þingmenn úr öllum öðrum kjördæmum landsins og eru þrír úr norðurausturkjördæmi og einn úr norðvesturkjördæmi. Úr þéttbýliskjördæmunum þremur koma ráðherrrar - en enginn úr Suðurkjördæmi. Er þetta ríkisstjórn Íslands? Formaður fjárlaganefndar og forseti Alþingis etv bókmerkt Suðurkjördæmi?
mbl.is Ný ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni Benediktsson - ekki bara af Engeyjarætt

Einar Gestsson og Steinunn VigfúsdóttirÞá er Sjálfstæðisflokkurinn búinn að velja sér formann.  Bjarni Benediktsson er eins og ég kominn út af hjónunum Einari Gestssyni og Steinunni Thorarensen sem bjuggu á Hæli í Gnúpverjahreppi 1873-1906, langalangafi og -amma okkar beggja. Ömmur okkar Aldís Pálsdóttir og Helga Ingimundardóttir voru systradætur og ágætar vinkonur. Afkomendur Einars og Steinunnar á Hæli hafa komið saman á ættarmót á tíu ára fresti undanfarna áratugi, síðast í júní 2006.

Faðir Bjarna, Benedikt Sveinsson og bræður hans Einar og Ingimundur arkitekt, voru kaupamenn í Litlu-Sandvík, hjá afa mínum Lýði Guðmundssyni.  Eflaust hafa þeir bræður lært þar að vinna ef ég þekkti afa rétt.

Þannig að ég get ekki verið annað en ánægður með formannskjörið, þrátt fyrir að hallast að öðrum stjórnmálaflokki.

Frænda mínum óska ég velfarnaðar í vandasömu starfi.


mbl.is Bjarni kjörinn formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helgi í Hólum

Helgi

Á innan við einu ári hafa fallið frá þrír fræðimenn hér í héraði: faðir minn Páll Lýðsson, Halldór Gestsson frá Syðra-Seli í Hrunamannahreppi og  nú í febrúar lést Helgi Ívarsson í Hólum, Stokkseyrarhreppi sem síðustu 5 árin hefur verið búsettur á Selfossi. 

Útför Helga Ívarssonar fór fram frá Gaulverjabæjarkirkju í gær og fylgdi honum fjölmenni.  Erfidrykkja í Félagslundi. 

Ég skrifaði í Moggann minningargrein um Helga Ívarsson þar sem ég greindi frá skráningarstörfum okkar árin 2001 til 2003.  Það var ótrúlega gefandi fyrir mig að fá í æð allar sögurnar um gripina sem hann var að gefa Byggðasafni Árnesinga.  Og hann vildi ekki að ég væri höfundurinn að skráningartextanum, nei, Helgi las fyrir mig hvert orð, vissi vel hvaða heiti hver gripur hafði, hver smíðaði eða hvenær keypt  og jafnvel hvað gripurinn kostaði ef hann var búðarkeyptur.  Ótrúlegt alveg hreint. Sem dæmi má nefna allar hagldirnar sem notaðar voru við að setja saman heybagga fyrr á tímum. Í kjallaranum voru ósköpin öll af högldum í kippum.  En það sem kom mér mikið á óvart var að Helgi gat eftir brennimörkum eða útskornu fangamarki eiganda fundið út hver átti fyrrum. Þeir voru fjölmargir en þetta vafðist ekkert fyrir Helga.  Hann hafði nefnilega gífurlega þekkingu á umhverfi sínu.

Á síðustu búskapardögum hans í Hólum 2003 tók ég þessa fínu mynd af Helga í stofunni í Hólum. Tekin 25. júní 2003.

Blessuð sé minning Helga Ívarssonar.  


Vatnsdeigsbollur

Ég sem keypti fasteign í október á 80% lánum er ekki ánægður með þessi tíðindi. En etv hafa þessar eignir sem fasteignasalan REMIX er að fá í sölu verið lengi til sölu hjá öðrum fasteignasölum.  En hvað um það, bolludagur nálgast:

 Efni:
60 gr. smjörlíki
2,5 dl. vatn
Ögn af salti
120 gr. hveiti
2 egg

Aðferð:
Smjörlíki, vatn og salt sett í pott, hrært og soðið. Hveitinu hrært út í. Þá er deigið kælt þar til það er orðið kalt (ekki volgt). Best er að láta pottinn með deiginu fljóta í fullum vaski af köldu vatni og ekki láta vatnið koma saman við deigið. Þegar deigið er orðið kalt er það sett í hrærivél og tveimur eggjum bætt í, einu í einu á ca. 2 mín millibili. Deigið í vatnsdeigsbollurnar er þá tilbúið og hentar ágætlega í átta stórar bollur eða 16 litlar eftir smekk. Bollurnar útbúnar og settar á ofnplötu og bakað í ofni við 225 gráður í 20-25 mín.

Verði ykkur svo að góðu.


mbl.is Eignir á „góðu verði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hitastigið

á óopinberum hitamæli hér  úti við dyr skrifstofu minnar á Eyrarbakka núna kl. 11 er 7 gráður á celsíus. 

Hva!

Umferð inn á heimasíðuna? Veðrið á Eyrarbakka? Jú, rétt yfir frostmark skv. mæli Byggðasafns Árnesinga óopinberum.  Ekki trúa Veðurstofunni.

Ég er ekki á leið í framboð tilkynnist hér með.


Ný stjórnarkreppa í vændum?

Ja nú lýst mér á! Davíð situr sem fastast og hefur skrifað mjög vandað bréf til forsætisráðherra. Sömuleiðis hefur Ingimundur Friðriksson skrifað mjög góða greinargerð um bankakreppuna.  Er kannski ný stjórnarkreppa í vændum? Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera?  Varla duga pottar og sleifar á Svörtuloft eða hvað? Heimta Heimdellingar ríkisstjórnina burrrt?   Verður mótmælt á tveimur stöðum? Eða var bréf Jóhönnu etv bara sýndarmennska? Það eru spennandi tímar framundan!
mbl.is Lýsir miklum vonbrigðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er mbl.is að gefa línuna?

Athyglisverð uppröðun ljósmynda með þessari frétt.  Efst í fréttinni er fín ljósmynd af Eyþóri Arnalds og þar fyrir neðan ljósmyndir af Johnsen og Mathiesen Árnum tveim og neðst ljósmynd af Kjartani í Hlöðutúni. Uppröðun ljósmyndanna tilviljun eða .... ?  (Svona er uppröðunin núna þegar færslan er skoðuð. )


mbl.is Sjálfstæðismenn með prófkjör í Suðurkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Bloggsíða Lýðs

Hver er Lýður?

Lýður Pálsson
Lýður Pálsson

Lýður Pálsson, safnstjóri á Eyrarbakka

lydurp@hotmail.com (ég sjálfur)

lydurp@byggdasafn.is (safnstjórinn)

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 58877

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband