Bjarni Benediktsson - ekki bara af Engeyjarætt

Einar Gestsson og Steinunn VigfúsdóttirÞá er Sjálfstæðisflokkurinn búinn að velja sér formann.  Bjarni Benediktsson er eins og ég kominn út af hjónunum Einari Gestssyni og Steinunni Thorarensen sem bjuggu á Hæli í Gnúpverjahreppi 1873-1906, langalangafi og -amma okkar beggja. Ömmur okkar Aldís Pálsdóttir og Helga Ingimundardóttir voru systradætur og ágætar vinkonur. Afkomendur Einars og Steinunnar á Hæli hafa komið saman á ættarmót á tíu ára fresti undanfarna áratugi, síðast í júní 2006.

Faðir Bjarna, Benedikt Sveinsson og bræður hans Einar og Ingimundur arkitekt, voru kaupamenn í Litlu-Sandvík, hjá afa mínum Lýði Guðmundssyni.  Eflaust hafa þeir bræður lært þar að vinna ef ég þekkti afa rétt.

Þannig að ég get ekki verið annað en ánægður með formannskjörið, þrátt fyrir að hallast að öðrum stjórnmálaflokki.

Frænda mínum óska ég velfarnaðar í vandasömu starfi.


mbl.is Bjarni kjörinn formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með ættingjann. Þú er á hraðri uppleið á virðingarstiganum

 kv. Skúli

Skúli Sæland (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 13:25

2 identicon

Skúli hefur vonandi litlu tapað í hruninu. En margir (30%?) taka nú  hag Flokksins fram yfir eigin.

Ekki þarf BB samt að skammast sín fyrir þennan ættlegg, síður en svo,

EN, 1911 fékk Bríet Bjarnhéðinsdótir samþykkt í Kvenréttindafélaginu að það sendi þakkarskeyti til Hannesar Hafstein fyrir að flytja og fá samþykkt lagafrumvarp um réttindi kvenna til kosninga, kjörs, embætta og námsstyrkja, en allar Engeyjarsystur voru á móti!

sbr. Guðj.Friðrs. Ævis. HH bls.563

Glúmur (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 10:04

3 identicon

Alltaf finnst mér nú gaman af ættfræði og góðum sögumönnum Lýður faðir þinn sagði mér eitt sinn að afi þinn og afi minn og nafni hafi verið vinir og afi þinn kaus Albert.ER Bjarni Ben ættaður frá Hlíð eins þú og Fúsi ,ég var nú heyra að móðir Bjarna væri ættuð að norðan og ekki skemmir það fyrir Formanninum

Ásgeir Jóhann (IP-tala skráð) 3.4.2009 kl. 22:26

4 Smámynd: Ólafur Björnsson

Fróðlegur pistill. Hælsmenn eru upp til hópa velgefið og duglegt fólk, alla vega þeir sem ég þekki. Treysti Bjarna vel til þessa verks, enda kaus ég hann.

Ólafur Björnsson, 7.4.2009 kl. 23:44

5 identicon

Ingimundur í Kaldárholti í Holtum, faðir Helgu, var sonur Benedikts Diðrikssonar, ráðsmanns á Breiðabólsstað í  Fljótshlíð (Bensa á Staðnum). Benedikt var hálfbróðir Jóns langafa míns á Skeggjastöðum, sammæðra.

Guðmundur í Hraungerði (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Lýðs

Hver er Lýður?

Lýður Pálsson
Lýður Pálsson

Lýður Pálsson, safnstjóri á Eyrarbakka

lydurp@hotmail.com (ég sjálfur)

lydurp@byggdasafn.is (safnstjórinn)

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 58910

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband