9.2.2008 | 16:13
Flytjum á Jótlandsheiðar!
Í morgun fékk ég símtal frá Steina vini mínum sem nú býr í Kollund á Jótlandi, rétt hjá Flensborg í Þýskalandi. Í okkar langa símtali kom meðal annars fram að Steini fer nú brátt að huga að fyrsta slætti. Farið er að grænka í Kollund og hann gat lýst veðrinu svo að þar væri komið vor. Hann sat út á veröndinni heima hjá sér þegar hann talaði við mig. Við rifjuðum upp nokkra hressilega íslenska vetra, m.a. veturinn 1999-2000 og janúar til febrúar 1991. Þá gustaði vel um okkar kalda sker.
Ég gæti alveg hugsað mér að flytja á Jótlandsheiðar. Það var svosem ekki vitlaus hugmynd þarna fyrir nokkrum öldum síðan hjá dönskmenntuðu embættismönnunum okkar að flytja þjóðina alla á hlýrri slóðir. Nú þarf ekki ráðgjöf embættismanna. Í dag höfum við val og ekkert sem heftir okkur annað en heimabakaðar skuldir og ósýnileg bönd sem kallast ættjarðarást.
Versta óveðrið í vetur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Bloggsíða Lýðs
Tenglar
Les reglulega
- Davíð Oddsson bloggaði Nýjar fréttir af efnahagsmálunum
- Erlingur Brynjólfsson
- Víiisiirrrr
- Ofurbloggarar
- Sandvíkurhreppur og nágrannar
- Höfuðborg Suðurlands
- Aldís bæjarstjóri
- Guðmundur í Hraungerði
- Ingi Heiðmar
- Sigurður Sveinsson
- Jónas ritstjóri Penni með áratuga reynslu af þjóðfélagsrýni
- Dagblaðið Nei Óháð blað á netinu
- Margrét Hallmundsdóttir FORNLEIFAFRÆÐINGUR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
...já og þessi hressilegi gustur í hárið þegar það blæs svona skemmtilega að norðan...
Hulda Brynjólfsdóttir, 10.2.2008 kl. 10:02
já þú manst þá vonandi að pikka í nágrannana líka ef þið flytjið, ég er sko til í að flytja úr þessum veðraham
Sædís Ósk Harðardóttir, 11.2.2008 kl. 23:56
Ætlarðu þá að taka Húsið með þér? þeir skiluðu okkur jú handritunum!
Óðinn af Eyrarbakka, 12.2.2008 kl. 13:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.