Söfn í Skotlandi

Dagana 18. til 25. sept. sl. dvaldi ég í Skotlandi. Fyrst með íslenskum safnamönnum í hinum svonefnda farskóla safnamanna sem starfræktur hefur verið frá 1988 á hinum ýmsustu stöðum á Íslandi - að þessu sinni þó utan skersins og flogið til Skotlands. Að farskóla loknum dagana 21.til25. dvaldi ég ásamt Gurru minni í Roslyn þorpi mjög vinalegu fyrir utan Edinborg. 

Með safnamönnum fræddist ég um starfsemi safna í borgunum Edinborg og Glasgow.  Hin fróðlegasta ferð.  Og ósköp eru nú íslensk söfn lítil miðað við  það sem sjá mátti í Skotlandi.  Allt miklu eldra og stærra í sniðum. Ýmsar hugmyndir fæddust í þessari ferð sem eflaust má vænta að muni sjást í starfsemi íslenskra safna í framtíðinni.  Söfn í Skotlandi gegna mjög mikilvægu samfélagshlutverki og eru ekki bara stofnanir sem safna, rannsaka, varðveita og sýna. Þau hrærast líka mjög mikið í því samfélagi sem þau lifa í.  

Athyglisverðasta safnið sem ég sá í ferðinni var í miðborg Glasgow, safn sem Hörður á Akureyri fann fyrir tilviljun og tókst að draga eins og þriðjung farskólanemenda með sér í skoðunarferð. Safnið heitir Reflex Museum.  Það fjallar um ákveðið fjölmenningarlegt fyrirbæri sem tröllreið öllum heiminum á árunum 1980 til ca. 1990. Höfðar til listgeirans, nánar tiltekið tónlistar.   Í safninu er spiluð úr háværum glymskröttum tónlist sem tilheyrir þessari menningu.  Veggir safnsins eru þakktir frægum einstaklingum sem þekktir voru fyrir að semja og flytja þessa tilteknu tónlist. Má þar nefna A. Ridgelay og G. Michael.  Á skjám mátti sjá hljómsveitir og listamenn sem viðurværi höfðu af þessari list. Sérstakir staðir voru hannaðir og stofnsettir víða um hinn vestræna heim til að spila þessa tilteknu tónlist og voru þar innréttuð sérstök dansgólf  til að dansa undir þessari tilteknu tónlist. Sérstök lýsing einkennir þetta fyrirbæri og kringlóttar glerkúlur snúast iðulega fyrir ofan dansiðkendur. Lýsingin er reyndar mjög óvenjuleg af söfnum að vera, ljós sem blikka í öllum litum og snúast til og frá.  Var því stundum erfitt að lesa hina fáu sýningatexta sem nær eingöngu voru heiti hljómlistarmanna þeirra sem iðkuðu þessa tónlist.  Gjarnan eru barir á þessum tilteknum stöðum sem á alþjóðamáli kallast discoteque.  Reflex Museum er endurgerð slíks staðar að mér virðist sem útskýrir hið sérstaka layout safnsins.  Ég er reyndar ekki alveg viss um að þetta hafi í raun verið safn. Var þetta safn?  Meðfylgjandi myndir sýna mig í vettvangsferðinni á Reflex Museum í Glasgow.

Meira skemmtilegt frá Skotlandsferðinni síðar.Skrýtið safn?

  Safnstjóri á safni?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Lýðs

Hver er Lýður?

Lýður Pálsson
Lýður Pálsson

Lýður Pálsson, safnstjóri á Eyrarbakka

lydurp@hotmail.com (ég sjálfur)

lydurp@byggdasafn.is (safnstjórinn)

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband