Strax?????

Er verslunin Strax til á Selfossi?  Það eru þá ný tíðindi sem ekki hafa farið hátt. Aldrei lýgur Mogginn!  Hér er væntanlega átt við Hornið eða Samkaup eða þá Samkaupstrax. Ég hefði skilið fréttina strax ef talað hefði verið um Hornið.
mbl.is Kveikt í blaðagámi á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: GK

Ég held hún heiti Samkaup-Úrval, og blaðagámurinn var frá Íslenska gámafélaginu, en ekki Sorpu.

GK, 8.8.2007 kl. 00:37

2 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Þessir REYKVÍKINGAR.

Eiríkur Harðarson, 8.8.2007 kl. 01:37

3 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Vegna svona klúðurs eigum við bara alltaf að kalla þennan stað Hornið, alveg eins og rúsínubúðin er enn Kaupfélagið og Höfn var Höfn allt til síðasta dags.  

Helga R. Einarsdóttir, 8.8.2007 kl. 10:36

4 Smámynd: Janus

Nafnið undir myndinni við fréttina er Guðmundur Karl, ég spyr nú bara eins og fávís Selfyssingur...er þetta ekki sá sami Guðmundur Karl og kommentar hér fyrstur???

Er hann að leiðrétta eigin frétt?

Janus, 8.8.2007 kl. 11:30

5 Smámynd: Lýður Pálsson

Tek undir með Helgu.  Nota bara gömlu nöfnin:  Hornið, Kaupfélagið, Höfn (reyndar rústir núna en 10 hæða turn bráðum),  Fossnesti og Arnberg. Svo má ekki gleyma Siggabúð þar sem hægt er að kaupa fínar pizzur. Strax er reyndar ágætt heiti á verslun, amk. betra en Kjarval! Og vonandi fær mjólkurbúðin áfram að heita mjólkurbúðin þrátt fyrir að MS hafi selt verslunarreksturinn.

Lýður Pálsson, 8.8.2007 kl. 12:02

6 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Var búinn að reka augun í það að Sorpa var sögð eiga gáminn en það er náttúrulega ekki rétt eins og GK var búin/n að benda á.

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 9.8.2007 kl. 01:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Lýðs

Hver er Lýður?

Lýður Pálsson
Lýður Pálsson

Lýður Pálsson, safnstjóri á Eyrarbakka

lydurp@hotmail.com (ég sjálfur)

lydurp@byggdasafn.is (safnstjórinn)

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 58953

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband