16.6.2007 | 00:14
Eyþór meðhjálpari í annari kirkju en sinni sóknarkirkju
Eyþór Arnalds er ekki sóknarbarn í Selfosskirkju. Hreiðurborg í Sandvíkurhreppi tilheyrir Eyrarbakkakirkjusókn.
Það er svolítið flókið að segja frá kirkjulífi íbúa Sandvíkurhrepps. Ég geri tilraun:
Fyrr á tímum heyrði Hreiðurborg til Kaldaðarnesskirkju eins og flestir bæja í Sandvíkurhreppi. Aðeins austasti hluti hreppsins átti sókn til Laugardælakirkju í Hraungerðishreppi. Þegar Kaldaðarneskirkja var aflögð í upphafi 20. aldar var sóknarbörnum skipt milli sókna, austur- og miðhluti Sandvíkurhrepps lagðist til Laugardælakirkju, vestasti hlutinn, Kaldaðarness- og Flóagaflshverfin lögðust til Eyrarbakkakirkjusóknar en Sandvíkurtorfan lagðist til Stokkseyrarsóknar þannig að frá fæðingu til 26 ára aldurs var ég sóknarbarn í kirkju sem ég aldrei sótti. Margoft fór ég hinsvegar í Selfosskirkju og þar fermdist ég. Séra Magnús Guðjónsson prestur á Eyrarbakka skírði mig þó mig rámi ekkert í þá ógleymanlegu athöfn eftir því sem séra Magnús og frú Anna segja mér í hvert sinn sem ég hitti þau heiðurshjón.
Ég held að Eyrbekkingar séu ekkert svekktir út í Eyþór Arnalds þó hann hjálpi kollega sínum í sellóleik við messuhald á Selfossi. Sjálfur söng ég hjá Glúmi í Kór Selfosskirkju um fimm ára skeið án þess að séra Úlfar eða organistarnir hefðu um það athugasemdir. Ég hefi hinsvegar mikinn áhuga á að dressa sr. Gunnar og Eyþór í Hreiðurborg upp í viðeigandi 19. aldar fatnað og leyfa þeim að halda selló-tónleika í stásstofu Hússins á Eyrarbakka við eitthvert sparitækifærið.
Eyþór Arnalds nýr meðhjálpari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Bloggsíða Lýðs
Tenglar
Les reglulega
- Davíð Oddsson bloggaði Nýjar fréttir af efnahagsmálunum
- Erlingur Brynjólfsson
- Víiisiirrrr
- Ofurbloggarar
- Sandvíkurhreppur og nágrannar
- Höfuðborg Suðurlands
- Aldís bæjarstjóri
- Guðmundur í Hraungerði
- Ingi Heiðmar
- Sigurður Sveinsson
- Jónas ritstjóri Penni með áratuga reynslu af þjóðfélagsrýni
- Dagblaðið Nei Óháð blað á netinu
- Margrét Hallmundsdóttir FORNLEIFAFRÆÐINGUR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 59196
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.