Óverðskuldað

Yfirstrikanir yfir Björn og Árna eru óverðskuldaðar. 

Björn hefur staðið sig mjög vel í baráttunni gegn harðsvíruðum auðmönnum sem ekki hafa hikað við að bjóða valdamiklum stjórnmálamönnum mútur ef eitthvað er að marka Davíð Oddsson og Illuga Gunnarsson. Ekki veit ég hvernig hin nýja væntanlega ríkisstjórn tekur á þeim málum.  Sennilega geta þeir Baugsmenn leyft sér allt hér eftir ef eitthvað er að marka þessar tvær Borgarnesræður sem Ingibjörg Sólrún hefur flutt.

Árni hefur afplánað sína refsingu fyrir brot sem hann framdi á sínum tíma.  Hann náði góðum árangri í prófkjöri.  Útstrikanir óskiljanlegar. 


mbl.is Árni og Björn færast niður um eitt sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: K Zeta

Útstrikanir er lýræði sem fólkið notar alltof sjaldan.  Sumir eru sáttir og aðrir ekki.  Þannig er það barasta og alveg skiljanlegt.  Það að dæmdur þjófur sé ekki strikaður út til að gegna þingmennsku væri frekar óútskýranlegt heldur en hitt.  Spurning hvers vegna ekk fleiri strikuðu Árna út.

K Zeta, 21.5.2007 kl. 00:07

2 Smámynd: Lýður Pálsson

Ólafur, jú, en ég myndi ekki láta þig hafa kassann til varðveislu.  Þannig verður fróðlegt að sjá hvaða sess Árni Johnsen fær innan þingflokksins og ábyrgðarstarfa.

K. Zeta. útstrikanir jú góð leið til að láta álit sitt í ljós. Ég hef skilað auðu í kosningum.  Árni náði öðru sæti í fjölmennu prófkjöri, hann nýtur vinsælda þrátt fyrir afglöp sín sem hann var dæmdur fyrir.

Lýður Pálsson, 21.5.2007 kl. 00:55

3 Smámynd: Sigþrúður Harðardóttir

Mér finnast þessar útstrikanir eðlilegar. Margir sjálfstæðismenn voru afar ósáttir við velgengni Árna í þessu prófkjöri...vildu hann alls ekki á listann. Það er gefinn möguleiki á þessu og þá nýtir fólk sér það ef því sýnist svo.  Hins vegar er athyglivert að útstrikanir almennt eru langflestar hjá sjálfstæðisflokknum og segir það okkur ekki að sjálfstæðismenn eru tryggastir kjósenda...við hin förum bara í fýlu og kjósum eitthvað annað ef okkur líkar ekki ,,okkar listi". Þarna skilur á milli :-(

Sigþrúður Harðardóttir, 21.5.2007 kl. 10:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Lýðs

Hver er Lýður?

Lýður Pálsson
Lýður Pálsson

Lýður Pálsson, safnstjóri á Eyrarbakka

lydurp@hotmail.com (ég sjálfur)

lydurp@byggdasafn.is (safnstjórinn)

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband