Færsluflokkur: Matur og drykkur

Flúðasvæðið?

Æ,æ!  Flúðasvæðið? Væri ekki nær að segja bara Grænmetisbændur í Hrunamannahreppi?  Eða upp í Hreppum?  Eða Ytri-hrepp? Eða öðrum Gullhreppnum?  (Grímsnesið góða, Sultartungur, Gullhrepparnir og Svarti-Flói! - sagði biskup einn.)

 


mbl.is Grænmetisuppskera í fullum gangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vatnsdeigsbollubakstur í kuldatíð

Etv. ekki heppilegt veður til útivistar þessa dagana en tilvalið er að nota þessa helgi til að baka vatndeigsbollur þar sem bolludagurinn er nú á mánudaginn.

Það hefur ekki verið mín sterkasta hlið að baka. Eina uppskrift kann ég þó utan að. Það er uppskrift að vatnsdeigsbollum sem ég baka án undantekningar helgina fyrir bolludag ár hvert, gjarnan þrefalda uppskrift. 

Hér kemur uppskriftin. 

 

  

60 gr. smjörlíki

2,5 dl. vatn

Ögn af salti

120 gr. hveiti

2 egg

Smjörlíki, vatn og salt sett í pott, hrært og soðið. Hveitinu hrært út í. Þá er degið kælt þar til það er orðið kalt (ekki volgt). Best er að láta pottinn með deginu fljóta í fullum vaski af köldu vatni. Þegar degið er orðið kalt er það sett í hrærivél og tveimur eggjum bætt í, einu í einu á ca. 2 mín millibili. Deigið í vatnsdeigsbollurnar er þá tilbúið og hentar ágætlega í átta stórar bollur eða 16 litlar eftir smekk. Bollurnar útbúnar og settar á ofnplötu og bakað í ofni við 225 gráður í 20-25 mín.

Verði ykkur svo að góðu.


mbl.is Mikil notkun á heitu vatni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vatnsdeigsbollur fyrir bolludaginn

Það hefur ekki verið mín sterkasta hlið að baka. Eina uppskrift kann ég þó utan að. Það er uppskrift að vatnsdeigsbollum sem ég baka án undantekningar helgina fyrir bolludag ár hvert, gjarnan þrefalda uppskrift. 

Hér kemur uppskriftin. 

 

  

60 gr. smjörlíki

2,5 dl. vatn

Ögn af salti

120 gr. hveiti

2 egg

Smjörlíki, vatn og salt sett í pott, hrært og soðið. Hveitinu hrært út í. Þá er degið kælt þar til það er orðið kalt (ekki volgt). Best er að setja pottinn með deginu í fullan vask af köldu vatni. Þegar degið er orðið kalt er það sett í hrærivél og tveimur eggjum bætt í, einu í einu á ca. 2 mín millibili. Deigið í vatnsdeigsbollurnar er þá tilbúið og hentar ágætlega í átta stórar bollur eða 16 litlar eftir smekk. Bollurnar útbúnar og settar á ofnplötu og bakað í ofni við 225 gráður í 20-25 mín.

Verði ykkur svo að góðu.


Um bloggið

Bloggsíða Lýðs

Hver er Lýður?

Lýður Pálsson
Lýður Pálsson

Lýður Pálsson, safnstjóri á Eyrarbakka

lydurp@hotmail.com (ég sjálfur)

lydurp@byggdasafn.is (safnstjórinn)

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 58904

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband